26.11.25

Vilja vinna magnesíummálm úr ís­lenskum sjó

Umfjöllun frá Vísi

Lesa umfjöllunina í heild sinni

Nýsköpunarfyrirtæki með stór áform um magnesíumvinnslu úr sjó stefnir að því að prófa framleiðsluna í fyrsta skipti hér á landi á næsta ári. Hvarfatankur sem íslenskur verkfræðingur hefur þróað á að vera lykilinn að því að vinna málminn með mun umhverfisvænni og skilvirkari hætti en tíðkast hefur til þessa.

Fréttir hafa nýlega verið sagðar af umfangsmiklum áformum félagsins Njarðar Holding ehf. um að reisa magnesíumverksmiðju á Grundartanga fyrir í kringum þrjátíu milljarða króna. Hún gæti séð hundruðum manna fyrir vinnu og framleitt um 50.000 tonn af magnesíummálmi á ári, um fimm prósent af heimsframleiðslu málmsins.

Verkefnið byggist á tækni sem Stefán Ás Ingvarsson, forstjóri Njarðar Holding, þróaði hjá Stanford-háskóla í Bandaríkjunum til þess að einangra magnesíumhýdroxíð beint úr sjó.

Aðferðin á ekki aðeins að skila hreinni málmi en eldri framleiðsluaðferð þar sem sjór var nýttur til að vinna magnesíum heldur nota fjörutíu prósent minni orku til þess. Þá á hún að vera laus við þann eitraða úrgang og koltvísýringslosun sem fylgir þeirri aðferð sem er notuð við framleiðsluna í Kína.

Fréttir

23.10.25

AFRY styður magnesíumverkefni Njarðar á Íslandi

Sjá meira

21.10.25

Prófa framleiðsluna á næsta ári

Sjá meira

16.10.25

Málmfræði og efni framtíðarinnar

Sjá meira

08.10.25

Undirbúningur magnesíumvinnslu á Grundartanga gengur vel

Sjá meira

Njörður ehf.

Suðurgata 22

101 Reykjavík

Ísland

njordur@njordur.com