08.10.25

Umfjöllun frá Skessuhorni
Lesa umfjöllunina í heild sinni
Á síðasta ári kynntu forráðamenn Njarðar Holding ehf. hugmyndir að stofnun verksmiðju til að vinna magnesíummálm úr sjó á Grundartanga. Í samtali við Skessuhorn segir Stefán Ás Ingvarssonar, forstjóri Njarðar, undirbúninginn ganga vel. Stefán Ás hefur á undanförnum árum þróað aðferð til að vinna málminn úr sjó á vistvænan og nær kolefnislausan hátt. Stefán, sem er rafmagnsverkfræðingur með rannsóknaraðstöðu við Stanford háskóla í Kaliforníu, segir að magnesíum sé léttasti málmur sem nú er í framleiðslu. Hann sé t.d. 36% léttari en ál og 78% léttari en stál. Hann stendur auk þess framar í styrk- og massahlutfalli og framar áli í tæringarþoli. Málmurinn verði því að öllum líkindum lykilmálmur í framtíð léttra og hreyfanlegra tækja. Má þar m.a. nefna bíla,- varnarmála- og rafeindaiðnað.

Njörður ehf.
Suðurgata 22
101 Reykjavík
Ísland
njordur@njordur.com