15.04.26

Prófa fram­leiðslu fyrir magnesíum verk­smiðju í sumar

Umfjöllun frá Viðskiptablaðinu

Lesa umfjöllunina í heild sinni

Nýsköpunarfyrirtækið Njörður, sem stefnir að því að reisa magnesíum-málmverksmiðju á Grundartanga, vinnur hörðum höndum við að undirbúa fyrstu prófun á framleiðslunni hér á landi sem áætlað er að fari fram í lok sumars. Framleiðslan byggir á nýstárlegri tækni til magnesíumvinnslu í sjó. „Við vorum nýverið að ljúka við matsáætlun sem er liður í umhverfismatsferlinu og bíðum nú eftir niðurstöðu Skipulagsstofnunar. Við reiknum síðan með að hefjast handa við uppsetningu og prófanir í júlí,“ segir Stefán Ás Ingvarsson, forstjóri Njarðar.

Hann segir prófun framleiðslunnar snúast um að setja upp samtengda framleiðslulínu. „Þessa stundina erum við að prófa sérhvert tæki sem er hluti af framleiðslulínunni en þetta eru bæði tæki sem við framleiðum sjálf sem og tæki sem eru framleidd af öðrum fyrirtækjum.“

Hluti af fyrrgreindum undirbúningi er ráðning nýs starfsmanns sem mun halda utan um uppbyggingu verksmiðjunnar á Grundartanga. „Margir mismunandi aðilar munu koma að prófun framleiðslunnar, þar á meðal skandinavíska verkfræðistofan AFRY, sem hefur unnið að verkefninu í mörg ár og sér um hönnun verksmiðjunnar. Við áttuðum okkur aftur á móti á því að það væru mikil verðmæti fólgin í því fyrir okkur að fá inn nýjan starfsmann sem mun halda utan um prófun framleiðslunnar og yfirfæra þá þekkingu þegar það kemur að uppbyggingu verksmiðjunnar sjálfrar.“

30 milljarða framkvæmd

Ekki er hægt að hefja byggingu verksmiðjunnar fyrr en að loknu umhverfismati og öflun allra tilskilinna leyfa en að sögn Stefáns er stefnt á að hefja framkvæmdir haustið 2027. Samkvæmt áætlunum er um 30-35 milljarða króna framkvæmd að ræða. Þegar verksmiðjan verður komin í full afköst er reiknað með að framleiðslan muni nema um 50 þúsund tonnum af magnesíum á ári, sem skili um 40-60 milljarða útflutningstekjum á ári hverju. Þá áætlar fyrirtækið að nýja verksmiðjan muni skapa um 300 störf.

Fréttir

26.11.25

Vilja vinna magnesíummálm úr ís­lenskum sjó

Sjá meira

23.10.25

AFRY styður magnesíumverkefni Njarðar á Íslandi

Sjá meira

21.10.25

Prófa framleiðsluna á næsta ári

Sjá meira

16.10.25

Málmfræði og efni framtíðarinnar

Sjá meira

08.10.25

Undirbúningur magnesíumvinnslu á Grundartanga gengur vel

Sjá meira

Njörður ehf.

Suðurgata 22

101 Reykjavík

Ísland

njordur@njordur.com